641 Fréttasíða Þingeyjarsveitar. Fréttir úr Þingeyjarsveit, Reykjahverfi og Mývatnssveit. Sendu inn efni

Blogg

16.2.2010

Óhöpp í Ljósavatnsskarði.

Leiðindaveður hefur verið í Ljósavatnsskarði í dag, slydduhríð og gengið á með vindrokum og mikill krapi safnaðist á veginn. Tvö óhöpp hafa orðið á stuttum kafla í skarðinu í dag. Fyrra óhappið varð við vélaskemmu Jarðverks rétt vestan við Stórutjarnaskóla þá slitnaði kerra aftan úr jeppa sem var á leið til Akureyrar með tvo nautgripi og valt.



Annað nautið slapp úr kerrunni og hljóp í gegnum girðingu og inn á tún ofan við Melgötu. Ekki vildi boli gera eins og mannfólkið ætlaðist til af honum enda dýrið örugglega hrætt en eftir töluverðan tíma tókst að koma bola greyinu inn í hús á Stórutjörnum.


Boli laus við Stórutjarnir.

Seinna óhappið varð svo neðan við bæinn Birningsstaði þar fór útaf fiskflutningabíll sem var að koma frá Akureyri á leið til Húsavíkur. Bílstjórann sakaði ekki. Þegar fréttaritari fór þar framhjá um sex-leytið var unnuð að því að ná bílnum upp á veg.


Flutningabíllinn útí skurði.

Texti: Aðalheiður Kjartansdóttir.
Myndir: Helen Jónsdóttir.

Skrifað 16.2.2010 kl. 0:02 af Aðalheiður Kjartansdóttir.

Bein slóð á færslu

Til baka

Fara á upphafssíðu