21.03.2024 19:35SmalamótÞann 29. Mars ætlum við að halda smalamót. Árangurinn ræðst af brautartíma og felldum keilum. Skrifað af Guðrún 14.03.2024 12:38Fræðslukvöld með Vali ValssyniFræðslukvöld með Vali Valssyni Þriðjudaginn 19. Mars kl 20:00 býður Neisti félagsmönnum sínum á fyrirlestur með Vali gæðingadómara í reiðhöllinni Arnargerði. Valur verður með almenna kynningu á reglum gæðingakeppninnar og keppnisformi. Hvort sem þú stefnir á að keppa eða hefur áhuga á gæðingakeppni almennt hvetjum við alla til að mæta og fræðast um hvað það er sem dómarar eru að skoða þegar hestur er í keppnisbraut. Frítt fyrir félagsmenn, 500 kr fyrir aðra. Hlökkum til að sjá ykkur sem flest Stjórn Neista Skrifað af Hafrún 08.03.2024 17:03Úrslit í fjórgang
Unglingaflokkur 2. Flokkur 1. Flokkur Skrifað af Guðrún 27.02.2024 17:50Vilko mótaröð Neista - Fjórgangur
Þann 7. Mars kl. 18:00 verður haldið annað mót vetrarins. Keppt verður í V1 í 1. og 2. flokk, og V5 í unglingaflokk. Barnaflokkur keppir í tvígang (skráð sem þrígangur á sportfeng). Ef skráð er eftir að skráningafresti lýkur er gjaldið 4000 kr. Skráningargjald verður að greiða svo skráning sé gild, og þarf að senda kvittun á [email protected] skráningarfresti lýkur 4.Mars kl. 23:59 skráning fer í gegnum sportfengur.com Skrifað af Guðrún 11.02.2024 07:17Aðalfundur Hestamannafélagsins NeistaBoðað er til aðalfundar Hestamannafélagsins Neista þann 19.2.2023. Fundurinn verður haldinn í reiðhöllinni Arnargerði og hefst kl. 20:00.
Dagskrá fundarins:
Hvetjum alla félagsmenn til að mæta.
F.h. stjórnar Hestamannafélagsins Neista,
Hafrún Ýr Halldórsdóttir,
formaður
Skrifað af selma 02.02.2024 21:35Þrígangur - úrslit
Fyrsta mót vetrarins var í gær og tókst frábærlega, margt um mann og hesta í höllinni.
Pollarnir Sveinbjörn Óskar á Tangó og Camilla Líndal á Hriflu hófu mótaröð vetrarins með nokkrum góðum hringjum, aldeilis vel ríðandi.
Barnaflokkur:
Unglingaflokkur:
2. flokkur: 1. Guðrún Tinna- Toppur frá Litlu-Reykjum - 6.333
2-3. Katharina- Dadda frá Leysingjastöðum- 6.167
2-3. Hafrún Ýr- Gjöf frá Steinnesi - 6.167
4. Kristín Jósteinsdóttir- Garri frá Sveinstöðum- 5.667
5. Kristín Birna- Sóldögg frá Naustum III - 5.333
1. flokkur:
Skrifað af Selma 23.01.2024 10:221. mót vetrarinsVILKÓ MÓTARÖÐ NEISTA ÞRÍGANGUR Þann 1. febrúar kl. 18:00 verður fyrsta mót vetrarins haldið og ætlum við að halda þrígang. Keppt verður í: Fullorðinsflokk- 1. flokk Fullorðinsflokk- 2. flokk Unglingaflokk Barnaflokk- tvígangur Pollaflokk Í þrígangsprógrammi verður sýnt tölt, brokk og stökk. Í barnaflokki verður keppt í tvígang sem er tölt eða brokk, og fet. Pollaflokkurinn verður svo eins og vant er. Skráning fer í gegnum https://www.sportfengur.com/#/home Ákveðið hefur verið að hafa fyrsta mót vetrarins frítt og hvetjum við alla til þess að koma og vera með.
Skrifað af Selma 09.01.2024 12:30Námskeið með Bjarka Þór
Þann 17. febrúar ætlar Bjarki Þór Gunnarsson að koma til okkar og vera með einkatíma fyrir félagsmenn. Það eru ekki endalaus pláss svo fyrstur kemur fyrstur fær. Tíminn kostar 8000kr og er 45 mínútur. Skráninga frestur er til 1. febrúar. Skráningu þarf að senda á [email protected] Skrifað af Selma 08.01.2024 22:02Vilkó Mótaröð Neista
1. febrúar - Þrígangur 7. mars - Fjórgangur 11. apríl - Tölt 27. apríl - Útimót Frekari upplýsingar koma fyrir hvert mót.
Vilkó styrkir mótaröð vetrarins. Skrifað af Selma 29.12.2023 20:15Ung og efnilegÍþróttamaður USAH árið 2023 var krýndur við hátíðlega athöfn í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi þann 28. desember, einnig fóru fram afhendingar á viðurkenningum fyrir Ungt og efnilega íþróttafólk. Salka Kristín Ólafsdóttir var tilnefnd frá Hestamannafélaginu Neista. Sjá umfjöllun í nóvember "Viðurkenningar 2023" Skrifað af Selma 29.12.2023 19:09Íþróttamaður USAH 2023Íþróttamaður USAH árið 2023 var krýndur við hátíðlega athöfn í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi þann 28. desember Skrifað af Selma 17.11.2023 05:50Viðurkenningar 2023Uppskeruhátíð 2023
Uppskeruhátíð húnvetnskra bænda og hestamanna var haldin 11. nóvember sl.
Hestamannafélagið tilkynnti á hátíðinni hverjir hlutu viðurkenningarnar knapar ársins og sjálfboðaliði ársins.
Ásdís Brynja Jónsdóttir er knapi ársins í eldri flokkum.
Ásdís Brynja gerði það virkilega gott á keppnisvellinum á árinu. Hún var staðsett á suðurlandi og keppti því aðallega þar sem félagi Neista. Hún keppti á Hátíð frá Söðulsholti en hryssan er í eigu Ásdísar.
Þær stöllur voru duglegar að keppa og tóku þátt í mörgum WR mótum. Þær kepptu t.d. í gæðingaskeiði PP1 í 1 flokk á WR Suðurlandsmóti Geysis og enduðu í 3 sæti. Á WR móti Sleipnis kepptu þær í fimmgangi F2 og lentu í 8 sæti og á WR íþróttamóti Geysis kepptu þær í fimmgangi F2 og enduðu í 10 sæti. Einnig tóku þær þátt í Parafimi í suðurlandsdeildinni og enduðu í 7. sæti.
Þetta er aðeins brot af keppnis árangri þeirra Hátíðar en þær stóðu sig virkilega vel á síðasta keppnisári og verður gaman að fylgjast með þeim í framtíðinni.
Innilega til hamingju með flottan árangur!
Salka Kristín Ólafsdóttir er knapi ársins í yngri flokkum.
Salka gerði það gott í keppni á síðastliðnu ári en má þar helst nefna að hún keppti á Unglingalandsmótinu á Sauðárkróki og stóð sig virkilega vel. Salka keppti í fjórgangi V2 og tölti T3 á merinni Gleði frá Skagaströnd og enduðu þær í 7. sæti í fjórgangi með einkunnina 5,53 og 4. sæti í tölti með einkunnina 5,78
Salka var dugleg að keppa en hún tók þátt í Skagfirsku mótaröðinni, mótaröð Þyts, kvennatölti Líflands auk þess sem hún tók þátt í öllum mótum sem Neisti hélt síðastliðinn vetur og stóð hún sig vel allstaðar þar sem hún keppti.
Salka Kristín hefur verið dugleg að sækja námskeið á vegum félagsins og núna síðast tók hún Knapamerki 2 og lauk því prófi í vor. Salka stundar hestamennskuna af miklum áhuga og sjáum við miklar framfarir hjá henni frá ári til árs, bæði á námskeiðum og í keppnisbrautinni.
Innilega til hamingju með flottan árangur.
Sonja Suska er sjálfboðarliði ársins.
Skrifað af Selma 15.11.2023 18:07Reiðnámskeið veturinn 2024
Námskeiðin eru auglýst með fyrirvara um næga þátttöku. Hópaskiptingar verða auglýstar að loknum síðasta skráningardegi á heimasíðu Neista, www.neisti.net. Kennarar: Guðrún Rut Hreiðarsdóttir, Sigríður Vaka Víkingsdóttir Skráning fer fram hér https://forms.gle/wkU5MqbXnmfuQpGt6 fyrir 01.12.2022. Almennt reiðnámskeið fyrir börn - 1x í viku Áhersla lögð á ásetu og stjórnun hestsins og aukið sjálfstæði í umgengni við hestinn og að nemandi nái góðu og traustu sambandi við hestinn sinn. Þátttakendum kennt að greina mun á gangtegundum. Leikir og þrautir á hestbaki. Þátttakendum verður skipt í hópa eftir aldri og getu. Námskeiðið hefst í lok janúar og lýkur í lok apríl. Verð: 15.000kr __________________________________________________________________________ Almennt reiðnámskeið fyrir fullorðna - 1 x í viku Almenn reiðnámskeið fyrir fullorðin sem eru að byrja í hestamennsku eða hafa misst kjarkinn. Áhersla lögð á ásetu og stjórnun hestsins og aukið sjálfstæði í umgengni við hestinn og að nemandi nái góðu og traustu sambandi við hestinn sinn. Þátttakendum kennt að greina mun á gangtegundum. Þátttakendum verður skipt í hópa eftir getu. Námskeið hefst í lok janúar og lýkur í lok apríl. Verð: 20.000 kr. Utan félags, verð: 25.000 kr. ___________________________________________________________________________ Pollanámskeið - 3 skipti í mánuði Ætlað fyrir yngri börn. Lögð verður áhersla á jafnvægi á hestbaki og grunnstjórnun hestsins í gegnum leiki og þrautir. Þátttakendum verður skipt í hópa eftir aldri og getu. Foreldrar/aðstoðarmenn teyma undir þeim börnum sem ekki eru tilbúin að stjórna sjálf. Kennt verður 1 sinni í viku, þrisvar í mánuði. Námskeið hefst í byrjun febrúar og lýkur í lok apríl . Verð: 10.000 kr _________________________________________________________________________ Námskeið fyrir lengra komna - 1x í viku Almennt reiðnámskeið þar sem farið er í æfingar til að bæta hestinn. Bæta samspil knapa og hests. Þjálfa gangtegundir og undirbúningur fyrir keppni. Námskeið hefst í miðjan janúar og lýkur í lok apríl . Verð fyrir félagsmenn Neista börn: kr. 20.000 fullorðin: kr. 30.000 Knapamerki 1 Fyrirkomulag:
Sjá má frekari upplýsingar um knapamerki á síðunni www.knapamerki.is Verð fyrir félagsmenn Neista börn: kr. 25.000 fullorðin: kr. 35.000 ___________________________________________________________________________ Knapamerki 2 Fyrirkomulag:
Sjá má frekari upplýsingar um knapamerki á síðunni www.knapamerki.is Verð fyrir félagsmenn Neista börn: kr. 30.000 fullorðin: kr. 40.000 ___________________________________________________________________________ Knapamerki 3 Fyrirkomulag:
Sjá má frekari upplýsingar um knapamerki á síðunni www.knapamerki.is Verð fyrir félagsmenn Neista börn: kr. 35.000 fullorðin: kr. 45.000
Skrifað af Selma 16.06.2023 20:21Félagsmóti Neista frestaðVegna dræmrar þáttöku hefur Félagsmóti Neista verið frestað um óákveðinn tíma. Þeir sem hafa nú þegar greitt skráningargjöld hafi samband við Selmu gjaldkera og hún gengur frá endurgreiðslu. Skrifað af Hafrún 12.06.2023 16:03Félagsmót Neista 2023Félagsmót Neista verður haldið 17. júní næstkomandi klukkan 10:00. Keppt verður í eftirfarandi flokkum: A-flokkur gæðinga B-flokkur gæðinga Ungmennaflokkur Unglingaflokkur Barnaflokkur Pollaflokkur (Teymt undir)
Skráningar skuli berast fyrir miðnætti þriðjudaginn 13. júní á sportfeng Mótanefnd áskilur sér rétt til að sameina eða fella niður flokka ef ekki næst næg þátttaka Skráningargjald er 3500 krónur Upplýsingarnar varðandi greiðslu og staðfestingarpóst sem koma upp í sportfeng eru ekki réttar! Millifæra skal skráningargjald inná reiknisnúmer: 0307 - 26 - 055624 Staðfestingu á greiðslu skal senda á emailið [email protected] Nánari upplýsingar um dagskrá kemur síðar Skrifað af Hafrún Flettingar í dag: 187 Gestir í dag: 22 Flettingar í gær: 4592 Gestir í gær: 38 Samtals flettingar: 431764 Samtals gestir: 51036 Tölur uppfærðar: 24.4.2024 12:39:06 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is