Myndasíða Kidda og Önnu
    <language>is</language>
Jólin
      <description>Halló allir, nú erum við að fara suður á bóginn á morgun 22. des og ætlum að vera í Hafnarfirðinum hjá mömmu og pabba. Við fljúgum frá Akureyri seinni partinn á morgun og komum til baka 3. janúar. Erum pínu stressuð út af veðrinu en það reddast allt. Búin að pakka niður og ganga frá öllum pökkum og kortum. og alveg tilbúin í slaginn. Við segjum bara GLEÐILEG JÓL OG FARSÆLT NÝTT ÁR við alla vini og vandamenn.jÓLAKVEÐJA Anna María og Kiddi.</description>
Halló
      <description>Þá erum við búin að fara til Akureyrar að keppa, engin verðlaun en gaman. Við erum líka búin að fara í leikhúsið og sjá fólkið í blokkinni. Í gær fórum við á námskeið til að læra um internetið og fleira, svo fórum við í matarboð til Gurru og Sigga. Nú er bara að fara að undirbúa og hlakka til jólanna...</description>
Ótitlað
      <description>Sælt veri fólkið, nú er komið að bocciaferð til Akureyrar, það er norðurlandsmót og verður bara dagsferð, og förum við á næsta laugardag. Um síðustu helgi fórum við í afmæli til Gerðu sem varð 35 ára skemmtilegt afmæli hjá henni. Ágætis veður á Húsavíkinni í dag, og við erum ekki búin að fá svínaflensu!</description>
Halló
      <description>Allt gott að frétta hjá okkur, alltaf nóg að gera. Um síðustu helgi fórum við í afmæli hjá björgunarsveitinni, svo vorum við bara að hafa það rólegt. Förum í afmæli til Gerðu á laugardaginn, ekkert fleira á planinu. Ég er að prjóna jólagjafir, og aðeins farin að hugsa um jólin. Kveðjur til allra...</description>
Komin heim
      <description>Komin heim eftir skemmtilega helgi á Selfossi, öllum gekk ágætlega en bara ein verðlaun hjá Völsungum, það var Kiddi sem endaði í 3.sæti í 1.deild..Kiddi á palli ásamt Hjalta sigurvegara og Gulla í 2. sæti.</description>
Halló
      <description>Húsavíkurfestivalið var um helgina, það var skemmtilegt, og við hittum marga vini. Komnar inn myndir frá festivalinu. Nú fer að líða að bocciaferðalagi, förum á Selfoss um mánaðarmótin. Annars eins og venjulega allt gott að frétta hjá okkur. Erla setur samkomunaMatti að spilaSvo kom Frímann og söng nokkur lögHanna að segja eitthvað skemmtilegtJóna Rún frekar alvarlegNonni og Jóel spiluðu fyrir okkurKiddi og félagar spiluðu fyrir dansiHrólfur sá um matinn sem var góðurVið hjúin í okkar besta pússi</description>
Haustið nálgast
      <description>Mikið framundan hjá okkur, festival um helgina, bocciamót á Selfossi um mánaðarmótin svo norðurlandsmót í boccia á Akureyri seinni partinn í október. Hér hefur verið gott veður undanfarið, samt pínu rigning síðustu daga. AMB í vinnufríi í dag, bara að bera út. Við förum í Miðjuna tvisvar í viku og erum að föndra og dunda okkur. Annars bara biðjum við að heilsa öllum......Kinnarfjöllin í sept.</description>
Haustið nálgast
      <description>Eins og alltaf er allt gott að frétta hjá okkur. Nú förum við bráðum að byrja í boccia og svo nálgast Húsavíkurfestivalið. Annars er alltaf nóg að gera, kveðjur til allra  </description>
ýmislegt
      <description>Fengum góða gesti frá Seyðisfirði í heimsókn og ætlum við að heimsækja þau í Illugastaði í kvöld.Sumarið var gott, fórum í bústað í Kjarnaskóg með Olla og Jónu og kepptum á landsmótinu á Akureyri. Fórum svo með mömmu og pabba í bústað í Hraunborgum og vorum svo hjá þeim í Hafnarfirðinum. Fórum svo að vinna aftur 10. ágúst eftir gott frí.</description>
Loksins...
      <description>Jæja þá er allt að komast í fastar skorður hjá okkur. Farin að vinna og lífið gengur sinn vanagang.Komnar nýjar myndir frá sumrinu bloggum fljótlega meira...</description>
17. júní og fleira
      <description>Sælt veri fólkið, mikið búið að gerast hjá okkur eins og alltaf. Um síðustu helgi fórum við í bústaðinn hennar Jónu með henni. Það var skemmtilegt, við hittum líka samstarfsfólk Kidda sem var í Lundi. Gestir komu til okkar á þriðjudaginn og var grillað í Grundargarðinum. Við fórum svo að hitta þau á Akureyri 17.júní og vorum boðin út í mat, góð ferð. Nú er kominn norðangarri rok og rigning, en sem betur fer á veðrið að lagast um helgina. Á morgun förum við á ættarmót í Heiðarbæ, það er ættin hennar Öldu mömmu Kidda, vonandi verður veðrið farið að lagast þá. Kveðjur til allra...</description>
Halló
      <description>Eins og vanalega er allt gott að frétta, ég er farin að hjóla í vinnuna...</description>
Sumarið er komið...
      <description>Allt gott að frétta hjá okkur nóg að gera bæði í vinnu og frítíma, veðrið fínt þessa dagana, og nýjar myndir komnar inn..Siggi vinur okkar kom í heimsókn á mánudaginn..</description>
List án landamæra
Hængsmóti lokið
      <description>Halló..Vorum á bocciamóti á Akureyri um helgina, það gekk bara vel, Kiddi varð í þriðja sæti í einstaklingskeppninni og Kiddi, Olli og Ási voru í þriðja sæti í sveitakeppninni, og mjög litlu munaði að Jóna, Anna og Lindi kæmust áfram í úrslit aðeins einn bolti...nýjar myndir komnar inn..Sigga þjálfari með hópinn sinn.A-sveitin með verðlauninKiddi með medalíuna...</description>
Páskafríið búið
      <description>Það voru rólegir og góðir páskar hjá okkur. Mamma og pabbi komu úr Hfnarfirðinum og voru hjá okkur. Við gerðum margt skemmtilegt, fórum í leikhús, fengum gesti og borðuðum góðan mat. Veðrið er loksins að verða gott og vor í lofti, vonandi kemur ekki meiri snjór.Kveðja..</description>
Snjór....
      <description>Veðrið búið að vera ótrúlega vont, mánudagurinn var slæmur, bærinn fullur af snjó og það sást ekki milli húsa. Veðrið er þokkalegt í dag verið að ýta heilu fjöllunum af snjó í bænum. Annars er allt gott að frétta, og vonum að vorið fari að koma...kveðja góð</description>
Komin úr borginni...
      <description>Þá erum við komin heim eftir góða ferð til Reykjavíkur, engin verðlaun en skemmtileg ferð engu að síður. Við kepptum í Laugardalshöll á laugardag, svo var lokahóf í Gullhömrum á sunnudagskvöldið, þar sem Sigga Beinteins og Grétar Örvars léku fyrir dansi, mikið fjör, svo var lagt af stað heim í bítið á mánudagsmorgun. Búin að setja inn myndir úr ferðinni. kveðjur til allra...</description>
Vont veður
      <description>Halló, vitum ekki alveg hvenær þessi vetur ætlar að enda, kolvitlaust veður um helgina og allt ófært í bænum. Við sluppum þó við vonda veðrið á ferðalagi okkar til Raufarhafnar með lionsklúbbnum, við fórum seinni part á föstudag og komum eftir hádegi á laugardag, mjög skemmtilegt ferðalag. Það er alltaf nóg að gera hjá okkur, og svo styttist óðum í keppnisferð til Reykjavíkur. Kveðjur til allra sem vilja þekkja okkur   </description>
Húsavíkurmótið búið
      <description>Sælt veri fólkið..Um síðustu helgi var Húsavíkurmótið í boccia, og íþróttamaður Húsavíkur kosinn. Þetta var skemmtileg helgi, Kiddi og Guðmundur urðu í þriðja sæti kepptu fyrir skrifstofur og fengu verðlaun. Jóna Rún og Sigmar sigruðu kepptu fyrir trésmiðjuna Rein, Lindi og Svenni Freys voru í öðru sæti kepptu fyrir Linda ehf. Annars eru öll úrslitin á bocciasíðunni. Kiddi var tilnefndur besti bocciamaðurinn 17 ára og eldri, og Sylgja Rún 16 ára og yngri, og Lindi fékk hvatningarbikarinn. Næst er svo íslandsmótið í einstaklingskeppni, haldið í Reykjavík 20-22.mars n.k. kveðjur góðar..</description>
Þorrablót
      <description>Vorum á þorrablóti í Miðjunni í gærkvöldi, það var mjög vel heppnað, hér koma nokkrar myndir frá þorrablótinu...</description>
Enn snjóar
      <description>Það snjóar og snjóar hlökkum til þegar fer að vora. Fengum góða gesti í kaffi um helgina það voru Pétur, Gulla og Katrín með krakkana. Ég fékk litla frænku í gær hún á heima í Vestmannaeyjum. Í kvöld er svo bocciaæfing, nú þarf að fara að æfa af krafti fyrir næstu mót. Kveðjur til allra...</description>
Enn að koma helgi
      <description>Halló...Gott veður á Víkinni í dag, en líklega breytist það fljótlega veðurspáin ekkert sérstök. Fór í moggaútburð í bítið og gekk það bara vel þrátt fyrir hálku. Á eftir förum við í söng í Pálsgarð og svo er boccia í kvöld, þannig að það er alltaf nóg að gera hjá okkur skötuhjúunum. Kveðjur til allra vina og vandamanna Frænkur mínar systurnar Mjöll og Drífa með okkur á góðri stund.</description>
Þorrinn byrjaður
      <description>Sælt veri fólkið, það er alltaf allt gott að frétta hjá okkur. Á bóndadaginn fórum við hjónakornin út að borða á Gamla Bauk, það var fínt. Á laugardaginn fórum við að jarðarför Hafliða Jónssonar vinar okkar og bocciafélaga. Hafliði var bara 58 ára og fór alltof snemma, en hann var búinn að vera lengi veikur af krabbameini. Annars vorum við bara í slökun á sunnudaginn, borðuðum góðan mat og höfðum það næs. Tíminn er svo fljótur að líða að það er alveg ótrúlegt janúar fer bráðum að verða búinn. Sendum kveðjur til allra sem við þekkjum.Boccialiðið í Bárðardal fyrir nokkrum árum, þarna er Hafliði með okkur.</description>
Janúar hálfnaður
      <description>Þá er lífið farið að ganga sinn vanagang eftir hátíðarnar. Við erum hress og kát á nýju ári. Bocciaæfingar byrjuðu í gær og líka sundnámskeiðið. Veðrið frekar leiðinlegt í dag, það hefur verið kveikt á skíðalyftunni síðustu daga og margir á skíðum.Biðjum að heilsa í bili...Jóhanna og ég við opnun Miðjunnar í desember s.l.</description>
Bærinn okkar
      <description>Tvær myndir sem við tókum af Húavík fyrir jól....</description>
Gleðilegt nýtt ár
      <description>Sælt veri fólkið, við óskum öllum vinum og vandamönnum nær og fjær gleðilegs árs með þakklæti fyrir liðnu árin. Jólin okkar voru fín við vorum í Hafnarfirðinum hjá mömmu og pabba. Fórum og hittum fjölskyldu og vini. Við fengum líka mikið af jólagjöfum og lítil 82 stk. jólakort. Nú er grár hversdagsleikinn tekinn við, en við ætlum að hafa jól fram yfir helgi. kveðjur... </description>
Loksin blogg
      <description>Jæja þá er loksins tími til að blogga, mikið að gera á stóru heimili að umdirbúa jólin. Við erum búin að fara á Emil í Kattholti, það var skemmtilegt, svo var Miðjan formlega opnuð, þar getum við farið og dundað okkur við ýmislegt, eða bara til að hitta mann og annann. Erum á full í jólakortum og jólagjöfum, allt gengur vel hjá okkur. Síðasti bocciatíminn í kvöld og litlu jólin á Grænuvöllum í fyrramálið. Kveðjur á línuna </description>
tíminn líður
      <description>Þá er norðurlandsmótið búið. Þetta var langur laugardagur hjá okkur, fórum af stað kl.níu og komum heim rúmlega tvö um nóttina. Ferðin gekk samt vel, og spilamennskan þokkalega. Tvö lið komust í úrslit það voru Kiddi og Olli og Anna og Lindi. Keppnin endaði þannig að Kiddi og Olli voru í fjórða sæti og Anna og Lindi í fimmta sæti. Annars er bara allt gott og nú förum við að setja upp jólaljósin okkar bráðum. Kveðjur til allra...</description>
Jólin nálgast
      <description>Erum að fara á boccimót á laugardaginn til Sauðárkróks. Þetta er norðurlandsmót, við komum aftur heim um kvöldið. Erum enn að selja jólakort, svo fer aðventan að nálgast og nú þarf að fara að dusta rykið af jólaskreytingum. Við ætlum suður um jólin, eins og svo oft áður, komum til baka 2. janúar. Góða helgi og hafið það gott...Ég og Gerða með mömmu og pabbaÉg og Margrét frænka </description>
Nóg að gera
      <description>Það er nóg að gera hjá okkur núna, jólakortasalan á fullu, sundnámskeið í gangi einu sinni í viku og svo eru það bocciaæfingarnar. Svo fara jólin að nálgast og margt að gera í tilefni af þeim. Annars erum við bara í góðum gír. Veðrið er að stríða okkur í dag snjókoma og leiðindi.Kveðjur til allra.... Myndir úr pökkunarpartýinu...Sigga og AnnaSigga og KiddiÁsi og MaggiÁsta, Steina, Bragi og Maggi</description>
Komin úr borginni
      <description>Heil og sæl..Þá erum við búin að fara til Reykjavíkur og keppa í boccia, skemmtileg ferð og gekk vel þrátt fyrir slæma veðurspá. Kiddi var sá eini sem fékk verðlaun en hann varð í öðru sæti í 1. deild sem er góður árangur hjá honum. Annars gekk spilamennskan bara vel þótt ekki hafi verið fleiri verðlaun.Kiddi með verðlaunapeninginn.Lokahófið var á sunnudagskvöldið á Fjörukránni í Hafnarfirði. Það var skemmtilegt og öðruvísi.Við skvísurnar tilbúnar á lokahófið.Alltaf jafn settleg.</description>
Halló
      <description>Loksins tími til að skrifa aðeins á síðuna. Eins og vanalega er allt gott að frétta af okkur hjónakornunum. Nú styttist í að við förum að leggja í hann til Reykjavíkur og taka þátt í Íslandsmóti í boccia. Við leggjum af stað föstudaginn 24. okt. keppum á laugardag og sunnudag og förum heim á mánudag. kveðjur til allra.....Myndir úr afmælispartýi hjá Gerðu um síðustu helgi....</description>
Sælt veri fólkið
      <description>Um helgina hélt ég veislu í tilefni af fertugsafmælinu mínu sem var í sumar, þetta tókst mjög vel og margir komu.Og þakka ég kærlega fyrir allar gjafirnar, þetta var skemmtilegt. kveðja Anna María</description>
Mánudagur
      <description>Sælt veri fólkið...Þá er enn ein vikan að byrja, haustveðrið er mætt á svæðið, annars er bara allt gott að frétta af okkur, kveðjur til allraVið með Bjart, hundinn hennar Ingu Helga.</description>
Góðan daginn
      <description>Held að það sé ekkert að frétta,veðrið enn gott,og við í góðum gír...</description>
Góð helgi
      <description>Helgin var skemmtileg hjá okkur, á föstudaginn horfðum við á Útsvar og sáum Ljótu hálfvitana sigra. Á laugardaginn var svo Húsavíkurfestivalið. það voru 130 mættir til að dansa, borða og hafa það skemmtilegt, nýjar myndir frá festivalinu komnar á síðuna. Á sunnudaginn fórum við í kaffiboð til Helgu Árna. Veðrið fínt, loksins að lægja þennan leiðindavind sem hefur verið undanfarið.Kveðjur til allra... .      </description>
Haustið að koma
      <description>Halló allir...Nú er haustið að koma, mikill vindur þessa dagana. Annars gengur bara allt vel,Ætlum á Húsavíkurfestivalið á laugardaginn. Annars ekkert meira planað...,frúin með afmælisgjöfina frá Glitni...,</description>
Bocciaæfingar byrjaðar
      <description>Þá erum við farin að æfa boccia, æfingar verða á þriðjudögum og fimmtudögum. Rigning og leiðindi úti núna, en það stendur til bóta. AMB er að fara á námskeið í vinnunni á morgun. Kannski förum við í sveitina um helgina ef veðrið verður gott, kíkjum í Lónið eða eitthvað.kveðjur besta...Tekið á síðustu æfingu fyrir sumarfrí.</description>
Halló
      <description>Eins og alltaf er allt gott að frétta, vinnan gengur vel, og veðrið er ennþá gott.Jóna og Jana í heimsóknÉg með afmæliskórónuna, frá Grænuvöllum</description>
Sumarfríið búið
      <description>Þá erum við gömlu hjónin byrjuð að vinna eftir langt sumarfrí. Það er bara ágætt. Veðrið leikur við okkur, vonandi verður það svoleiðis áfram. Reynum að vera dugleg að skrifa á síðuna, og alltaf gaman að fá kvitt í gestabókina. Kveðjur til allra A+Kég Birna og Anna Brá í fríhöfninni</description>
Til gamans
      <description>Við með pabba á ströndinni</description>
Komin heim frá Spáni
      <description>Sælt veri fólkið...Loksins ætlum við að skrifa smá, sumarið hefur verið fljót að líða, fórum til Mallorka með mömmu, pabba, Bjarna bróðir, Helgu, Birnu, Ingólfi, Bryndísi og Önnu Brá, þetta var skemmtileg ferð, og margt skoðað, og til gamans má geta þess að frúin sjálf, Anna María Bjarnadóttir upplifði þann merka áfanga að verða fertug. Nú erum við komin heim í heiðardalinn, og hversdagsleikinn að taka við. Við byrjum bæði að vinna 1. sept eftir gott frí.þá látum við þetta duga í bili, kveðja til allra sem við þekkjum, Anna og Kiddi                                                                                      Við í dýragarðinumÁ afmælisdaginn við og Birna Ragnheiður                                                                                                               Allt er fertugum fært....Allur hópurinn að fara út að borða á stóra daginn.</description>
Bloggfrí
      <description>Halló allir,Nú ætlum við að hvíla okkur á blogginu einhvern tíma, en aldrei að vita nema detti inn einhverjar nýjar myndir, okkar plan er að í ágúst ætlum við til Spánar, og stefnum að því að hafa það skemmtilegt í sumar, taka þátt í mærudögum, fá okkur bíltúr í sveitina, dugleg að labba og fara í sund, og sendum sumarkveðjur til allra sem við þekkjum Við gömlu hjónin á kaffi Skuld.... </description>
Ekkert sumarveður
      <description>Sælt veri fólkið...þá er hann lagstur í rigningu og norðanátt, ekki skemmtilegt. Hefur verið nóg um að vera hjá okkur, Kiddi fór í Flatey s.l. föstudag, skemmtileg ferð og veðrið frábært, á meðan fór Anna í Akureyrarferð með Jónu og fjölsk. Svo var 17. júní, fórum í skrúðgöngu, sáum skemmtidagskrá og fengum okkur kaffi, frekar kalt í veðri. kveðjur til allra....Komnar myndir frá Flateyjarferð og frá 17. júní.</description>
Halló
      <description>Heil og sæl...Góða veðrið búið í bili rigning og leiðindi í dag og gær. Fórum í skemmtilega ferð með Lionsklúbbnum á föstudaginn, þar lék veðrið við okkur, mjög gaman hjá okkur.Styttist óðum í sumarfrí, og utanlandsferð. kveðja til allra Anna og KiddiP.S. nýjar myndir úr Lionsferðalaginu komnar á síðuna okkar.</description>
Erum að komast í gang
      <description>Heil og sæl öll  Erum að reyna að átta okkur á breytingum á 123.is, gengur frekar hægt. Af okkur er allt gott að frétta, Kiddi allur að koma til, hann ætlar samt ekki að fara í vinnu fyrr en í september, hann fer sjúkraþjálfara þrisvar í viku, og er duglegur að fara í sund og labba.Veðrið hefur verið gott undanfarið, við spæstum á okkur nýju grilli, og ætlum að vera dugleg að grilla í sumar. Gleymdi að við erum líka búin að fá okkur nýja tölvu, og við erum að hamast við að æfa okkur á hana.Annars bara allt svipað...</description>
Loksins
      <description>Sælt veri fólkið...Höfum ekkert skrifað á síðuna okkar lengi, enda um margt annað að hugsa. En nú er Kiddi kominn heim eftir að hafa farið í hjartaþræðingu og blástur, sem gekk vel, hann var rúma viku á landsspítalanum, kom svo á sjúkrahúsið á Húsavík og var þar í viku. En nú er hann kominn heim, og er að hvíla sig og safna kröftum, og allt gengur vel. Mamma og pabbi komu úr Hafnarfirði og voru hjá okkur í rúma viku, en þau fóru í dag. Það var gott að hafa þau. Biðjum að heilsa í bili Anna og Kiddi</description>
Kiddi á afmæli í dag....
      <description>Þá er stóri dagurinn hans Kidda í dag, nú er hann orðinn 45 ára. Í tilefni af því ætlum við að gera okkur glaðan dag, og fara út að borða. Það er vor í lofti, og bjart yfir Húsavíkinni og okkur, kveðjur bestar.   </description>
Komin heim
      <description>Þá erum við komin úr Reykjavíkinni, ferðin gekk vel og okkur þótti gaman, því miður fengum við engin verðlaun, en það geta ekki allir unnið. Lokahófið var skemmtilegt, Páll Óskar var með diskó, svo fengu allir eiginhandaráritun hjá honum, og þeir sem vildu gátu látið mynda sig með stjörnunni.</description>
Íslandsmót nálgast
      <description>Nú er bara rúm vika þangað til við förum til Reykjavíkur á Íslandsmót í boccia, sveitakeppni. Við fljúgum frá Akureyri, og gistum á hóteli.Páskarnir voru góðir hjá okkur, mamma og pabbi komu úr Hafnarfirðinum, og voru hjá okkur um páskana. Svo komu Alda og Óskar í mat á föstudaginn langa. Kaffiboð var svo hjá okkur á annan í páskum, svo vorum við að borða góðan mat, og hafa það gott. Borðuðum eitt páskaegg, sem Siggi Sverris gaf okkur, ekki að spyrja að honum. Málshátturinn: Svo bregðast krosstré sem önnur tré...Svo er afmælið hjá Öldu mömmu Kidda næst á dagskrá en hún er áttræð í dag, og það á að halda upp á það á sunnudaginn. Kveðjur til allra</description>
Norðurlandsmótið
      <description>Engin verðlaun en skemmtileg ferð..</description>
Akureyri á laugardag
      <description>Sælt veri fólkið. Á laugardaginn förum við inn á Akureyri að keppa á norðurlandsmóti í boccia, þetta er bara dagsferð, förum svo suður eftir mánaðarmótin á íslandsmótið. Páskarnir nálgast, þá fáum við gesti að sunnan, Nú er slabb aldarinnar á götunum, eiginlega ófært bæði á bílum og gangandi. Förum í bloggpásu þar til eftir páska. Kveðja til allra... </description>
Enn að koma helgi...
      <description>Það er eins og það sé alltaf helgi, tíminn er svo fljótur að líða, enda eins gott að það fari að styttast í sumarið. Vetrarríki ennþá, veðrið hundleiðinlegt, og svo ískalt í þaokkabót, annars er allt gott, kveðjur til allra</description>
Skemmtileg helgi
      <description>Fórum á konukvöld hjá Lionsklúbbnum á föstudagskvöldið, á laugardaginn fórum við á tónleika með karlakór Dalvíkur, sunnudagurinn tekinn í slökun. Allt gott að frétta eins og alltaf.Sunna Líf og Viktor Nói sem eiga heima í Belgíu.</description>
Góan byrjuð..
      <description>Sælt veri fólkið, helgin var bara skemmtileg hjá okkur, á laugardaginn var opna Húsavíkurmótið í boccia, þar mættu 24 lið til leiks, Lögreglan (Billi og Deddi) sigraði eins og í fyrra, Tónninn (Lindi og Svenni) var í öðru sæti, og Norðurþing (Kiddi og Bergur) hafnaði í þriðja sæti, það gekk ekkert sérlega vel hjá Grænuvöllum (Önnu Maríu og Gunnu Dóru) en þær ætla að verða betri á næsta ári. Svo var íþróttamaður Húsavíkur kjörinn það var Stefán Jón Sigurgeirsson skíðamaður. Bocciamaður yngri var Lindi en eldri var Ási, Gerða fékk svo hvatningarbikarinn í boccia.Svo var konudagsstemming hjá okkur á sunnudaginn með góðum mat og fleiru. </description>
Ný vinnuvika
      <description>Veðrið leikur við okkur í dag hér á Húsavíkinni. Helgin var róleg hjá okkur, um næstu helgi verður Húsavíkurmótið í boccia, þá verður nóg að gera.Eins og vanalega allt gott að frétta hjá okkur kv. AMB</description>
Sólin skín
      <description>Búið að vera leiðinlegt veður undanfarið, í dag er hvasst en sólin skín glatt, svo maður verður hálfblindur. Framundan hjá okkur er Húsavíkurmótið í boccia sem verður 23. febrúar, og þar á eftir er Norðurlandsmót á Akureyri í mars. Ég er búin að fara í klippingu og strípur til Rósu, og er eins og ný manneskja. Nýi bíllinn reynist mjög vel. Kveðjur til allra bless í bili AMBÞetta er ég á öskudaginn með hárkollu, en ekki nýju klippinguna </description>
Vetur á Húsavík
      <description>Halló allir, eins og vanalega allt gott að frétta hjá okkur skötuhjúunum, vorum bara í rólegheitum um helgina, bökuðum bollur og fleira skemmtilegt, nú er ég að sjóða saltkjöt og baunir, maður verður að fylgja gömlu siðunum.bless í bili Anna</description>
Þorrinn byrjaður
      <description>Á miðvikudaginn í síðustu viku borðuðum við þorramat í góðum hópi í Verkalýðssalnum og áttum góða kvöldstund. Höfðum svo þorramat á bóndadaginn, og Kiddi fékk sína bóndadagsgjöf? Helgin var róleg, vorum heima að hafa það gott.Kveðjur til allra Anna og Kiddi</description>
Vetrarríki
      <description>Vont veður um helgina, við vorum bara að kósa okkur heima og hafa það gott, kveðjur til allra K+A</description>
Þorrinn nálgast...
      <description>Nýji bíllinn reynist vel og erum við mjög ánægð með hann. Annars gengur allt sinn vanagang hjá okkur. Verið nú dugleg að skrufa í gestabókina við höfum svo gaman að því kveðja Kiddi og Anna</description>
Nýji bíllinn kominn.......
      <description>Jæja þá er nýji bíllinn mættur á Húsavíkina </description>
Gleðileg jól
      <description>Jæja þá eru jólin alveg að bresta á, tveir dagar í Reykjavíkurjólaferð.Ætlum að taka okkur pásu í blogginu um hátíðirnar. Óskum öllum vinum og vandamönnum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári, Kiddi og Anna</description>
Jólahlaðborð
      <description>Fórum á jólahlaðborð um helgina, góður matur og mjög gaman</description>
Jólin nálgast
Bocciamóti á Akureyri var frestað..
      <description>Vorum farin af stað á Eyrina á laugardaginn og komin í kinnina, þega ákveðið var að fresta mótinu enda veðrið alveg kolvitlaust</description>
Jólakortapökkun
      <description>Búin að pakka jólakortunum þetta árið</description>
Nokkrar myndir til gamans
Góðan daginn vinir og vandamenn
      <description>Allt gott að frétta eins og vanalega, erum búin að ákveða að vera fyrir sunnan um jól og áramót...</description>
Halló
      <description>Nú erum við búin að fara á Akureyri að keppa á Íslandsmóti í boccia, það gekk bara vel, Ási var sá eini sem komst á pall, hann varð í öðru sæti í 2.deild, gistum á Lónsá, með Seyðfirðingum, vont veður á leiðinni til Ak.en fínt á heimleiðinni, kveðjur til allra ...</description>
Heil og Sæl
      <description>Sælt veri fólkið, erum orðin ansi góð að setja inn myndir, stundum smá ruglingur milli albúma,annars allt gott að frétta héðan. Förum á Akureyri um helgina að keppa í boccia, kveðja A+K</description>
Alltaf að setja inn myndir
      <description>Erum að verða ansi klár í að setja  inn myndir....nýjar myndir nánast á hverjum degi...Gott veður eins og er á Víkinni en haustlegt um að litast...</description>
Fleiri myndir
      <description>Erum búin að setja inn fleiri myndir</description>
Nýjar myndir
      <description>Þetta er allt að koma hjá okkur, nokkrar myndir komnar, meira síðar...</description>
Halló
      <description>Ætlum að reyna að setja hérna inn myndir í framtíðinni, vonandi gngur það...</description>