Skynsamleg næring fyrir alla!

Nokkur atriði sem eru grundvöllurinn að heilnæmum og virkum lífstíl sem allir ættu að tileinka sér:

* Góð næring sem fæst úr vel samansettu og fjölbreyttu mataræði. Það þýðir einfaldlega það að magn og samsetning af almennum næringarefnum og snefilefnum þarf að vera hárrétt miðað við einstaklingsbundnar þarfir sem ráðast af mikilvægum þáttum á borð við: aldur, kyn, þyngd, líkamssamsetningu, hreyfingu, persónuleg markmið eins og t.d.
-draga úr umframþyngd
-að bæta á sig þyngd
-að auka orkuna
-að bæta sig í íþróttum og líkamsrækt

*Litlar vel samsettar og nærignarríkar máltíðir og snarl yfir daginn til þess að hjálpa til við að halda orkunni stöðugri og endurnýja nærignarefnaforðann.
*Sjö skammtar af litríkum og ferskum ávöxtum og grænmeti á dag til þess að tryggja sér holl næringar- og andoxunarefni.
*Nægur vökvi - a.m.k 2 lítrar af vatni á dag.
*Regluleg hreyfing, hvíld og slökun. Í þessu felst meðal annars að stunda miðlungserfiða til erfiða líkamsþjálfun í að minnsta kosti 30 mínútur á dag 5 daga vikunnar. Auk þess þarf að tryggja sér að minnsta kosti 7 klst gæðasvefn á hverri nóttu.
*Að hætta að reykja og takmarka áfengisneyslu.

Flettingar í dag: 7
Gestir í dag: 5
Flettingar í gær: 45
Gestir í gær: 5
Samtals flettingar: 31128
Samtals gestir: 10250
Tölur uppfærðar: 9.2.2010 18:16:53