Much to do about nothing
30.6.2008
Hlutir sem ég hata...
...ég hata þegar ég get ekki sofið á nóttunni vegna þess mér klæjar svo í lófana.
...ég hata þegar ég get ekki sofið vegna þess að ég er svo bitin eftir pöddur.
...ég hata að þegar loksins á næ að sofna þá er klukkan orðin 7, það er bjart úti og ég þarf að fara að vinna.
...ég hata að sofna í sólbaði og átta mig svo á því eftir nokkra klukkutíma að ég lít út eins og tómatur og annað augað á mér er bólgið af sólbruna.
...ég hata þegar hárið á mér vill ekki gera eins og ég vil að það geri og því lítur út eins og ég sé með dautt dýr á kollinum.
...ég hata að reka tánna svo fast í að ég sneiði part af henni af.
En so far hefur þetta verið fínn dagur....
K

29.6.2008
Óskalisti....

Mig langar í svona í afmælisgjöf..... öll fjárlög eru vel þegin !
Steini er farinn... skutlaði honum klukkan 5:30 am í morgun og er hann as we speak að hanga á flugvellinum í Boston. Ég er búin í skólanum.... jei.... ég veit ekki alveg lokaeinkunina í ítölskunni, en ég fékk allavega 9 í lokaprófinu mínu og lægsta einkunnin mín var 8,7 svo ég held að ég hafi alveg fengið fína einkunn þar. Ég ætla að ath í ágúst með tíma hjá the adult learning center í Virginiu Beach og sjá hvort ég geti kannski bætt aðeins á orðaforðann minn.
Nú er samt bara að fara að troða inn í sig öllum upplýsingunum fyrir stóra prófið mitt sem er 19. júlí. Ég var að fá mail áðan frá skólafélaga mínum sem er að koma saman með study group fyrir prófið þann 5. júlí svo að sjálfsögðu ætla ég að mæta því það hjálpar allaf að tala um hlutina. En nóg um það...
Ég er með íbúðina, sjónvarpið, hundinn, vespurnar, bílinn og ísskápinn alveg fyrir mig næstu dagana s svo ég ætla að fara koma mér út í laug í smá tan.
K
27.6.2008
Ég er fegurðardrottning....
...ég brosi ég genum tárin....
Ég veit nú svo sem ekkert hvort ég sé fegurðardrottning, var einu sinni prinsessa, en ég er allavega BÚIN MEÐ SKÓLANN. Það þýðir samt ekki að ég sé búin að læra... ég á enn skemmtilega 6 klukkutíma prófið mitt eftir, en eins og staðan er í dag þarf ég aldrei að fara í skólatíma aftur á ævinni....... en aldrei að segja aldrei.
Til að fagna áfanganum ætlum við hjónin að gera heiðarlega tilraun númer 2 að fara í Water Country og mögulega að skella okkur í Busch Gardens líka
En, ég þarf allavega núna að fara út með hundinn og þreyta hana þar sem hún á eftir að vera ein heima í allan dag svo........ ég kveð að sinni...
Stína - ekki lengur skólastelpa

24.6.2008
Ég er varla að trúa þessu....
...ég er bráðum alveg að verða búin með mína skólagöngu !!!
Það er oral presenation á morgun, quiz á fimmtudaginn, próf á föstudaginn og svo er ég hætt að mæta í skólann
Þetta verður doldið skrítin tilfinning hjá mér að labba þaðan út á föstudaginn..... ég er náttlega ekki útskrifuð strax, þarf enn að ná stóra COMPS prófinu mínu og svona, en ég þarf allavega ekki að mæta meira í skólatíma.... skrítið. Alla mína meðvituðu ævi hef ég verið nemi frekar en eitthvað annað. Jú, ég tók mér tæpt ár frí eftir HÍ áður en ég kom hingað - en frá 6 ára aldri hef ég alltaf verið nemi. Á þriðjudaginn munu það vera 22 ár, takk fyrir - og mér finnst ég ekki eldri en 21 árs ?!?
Annars finnst manni stundum maður vera blogga fyrir tómum dyrum... maður veit svo sem aldrei hverjir kíkja (nema þessir "reglulegu" náttlega) en fyrir þá sem lesa þetta þá langaði mér bara aðeins að monta mig, því - eins og er þekki ég ekkert SVAKALEGA marga sem hafa verið svona lengi í skóla (meira og minna stanslaust meina ég). En nóg um það.
Eiginmaður minn til rúmra 4 ára mun svo yfirgefa mig til land okurs og rigningar næsta sunnudag.... get nú ekki sagt að það sé eitthvað svakalega leiðinlegt - fínt að fá pásu inn á milli - bara leiðinlegt að ég skuli vera ein á afmælinu mínu. Ég er samt búin að vera skoða kökuform á netinu og ég er búin að ákveða að kaupa mér nýtt form og baka einhverja svakalega köku og koma með í vinnuna. Í fyrra gerði ég Tinkerbell svo það er ekki hægt að vera með eins 2 ár í röð... hver veit - kannski ég fái mér bara tattoo í afmælisgjöf frá sjálfri mér
Sjáum til..... ég er allavega farin að vinna meira...
K
Það er oral presenation á morgun, quiz á fimmtudaginn, próf á föstudaginn og svo er ég hætt að mæta í skólann
Þetta verður doldið skrítin tilfinning hjá mér að labba þaðan út á föstudaginn..... ég er náttlega ekki útskrifuð strax, þarf enn að ná stóra COMPS prófinu mínu og svona, en ég þarf allavega ekki að mæta meira í skólatíma.... skrítið. Alla mína meðvituðu ævi hef ég verið nemi frekar en eitthvað annað. Jú, ég tók mér tæpt ár frí eftir HÍ áður en ég kom hingað - en frá 6 ára aldri hef ég alltaf verið nemi. Á þriðjudaginn munu það vera 22 ár, takk fyrir - og mér finnst ég ekki eldri en 21 árs ?!?Annars finnst manni stundum maður vera blogga fyrir tómum dyrum... maður veit svo sem aldrei hverjir kíkja (nema þessir "reglulegu" náttlega) en fyrir þá sem lesa þetta þá langaði mér bara aðeins að monta mig, því - eins og er þekki ég ekkert SVAKALEGA marga sem hafa verið svona lengi í skóla (meira og minna stanslaust meina ég). En nóg um það.
Eiginmaður minn til rúmra 4 ára mun svo yfirgefa mig til land okurs og rigningar næsta sunnudag.... get nú ekki sagt að það sé eitthvað svakalega leiðinlegt - fínt að fá pásu inn á milli - bara leiðinlegt að ég skuli vera ein á afmælinu mínu. Ég er samt búin að vera skoða kökuform á netinu og ég er búin að ákveða að kaupa mér nýtt form og baka einhverja svakalega köku og koma með í vinnuna. Í fyrra gerði ég Tinkerbell svo það er ekki hægt að vera með eins 2 ár í röð... hver veit - kannski ég fái mér bara tattoo í afmælisgjöf frá sjálfri mér
Sjáum til..... ég er allavega farin að vinna meira...K
23.6.2008
Það er komið sumar.....
...allavega svona löglega... Á laugardaginn var nebblega sumardagurinn fyrsti hérna í USA og í tilefni dagsins var Tropical Smoothie að gefa fría smoothies ef maður mætti í flipp-flops. Ég gerði mér nú reyndar ekki ferð til að fá mér smoothie, en þetta var fallega gert hjá þeim svona til að fagna að sumarið sé "loksins" komið 
Helgin hjá okkur hjónum var bara mdð besta móti. Þegar Steini var búinn að vinna á föstudaginn gerðum við okkur ready og skeltum okkur í bílinn og ÆTLUÐUM að fara í Water Country - það var snarlega stoppað eftir að við vorum búin að vera stopp í um 30 min og ekki fara nema 3 mílur svo við fórum af þjóðveginum og skelltum okkur á ströndina í staðinn og fengum okkur gott að borða eftir á. Á laugardaginn vorum við svo búin að lofa Sellu að hjálpa henni með matarboð sem hún var með fyrir ræðismennina hérna í kring og gekk það bara vel.... upp að ákveðnu marki. Hún var bara með steikur og franskar fyrir liðið (ég keypti mér tuna-steik) og ætlaði að hafa brokkoli, brauð og aspas sem meðlæti með. Þegar við vorum að fara byrja á þessu öllu saman þá sló rafmagninu út á part í eldhúsinu svo við gátum ekki notað örbylgjuofninn, ofninn eða báða djúpsteikngarpottana í einu! Þar sem ég var nú ekkert svo óvön svona dögum á mínum veitingahúsaferli þá redduðum við þessu náttlega með stæl - færðum einn djúpsteikingapottinn niður í stofu, notuðum örbylgjuofninn sem var úti í herberginu sem við Steini vorum fyrst í, hentum brauðinu á grillið og létum eldhúsið bara vera part rafmagnslaust í friði þar sem það var engin leið fyrir okkur að sjá hverju hefði slegið út. Þetta reddaðist allavega allt og allir voru bara saddir og sáttir.
Á sunnudaginn fór ég svo út í dinner með Christine og Alexis, en þær eru báðar fluttar í burtu frá mér (ein til Californiu og ein til Annapolis) svo það var gott að geta hitt þær og sjallað saman yfir góðum mat.
Annars get ég nú varla beðið eftir að þessi vika sé búin því þá er ég BÚIN í skólanum !! Á náttlega eftir stóra prófið mitt, en ég þarf allavega ekki að mæta meira í skólann og það þýðir þá líka að ég geti farið að mæta í vinnuna klukkan 9 aftur og verið komin heim rúmlega eitt (í staðin fyrir rúmlega 5 á daginn). Svo styttist náttlega líka í að Steini fari heim (næsta sunnudag) sem þýðir þó líka að það styttist enn meira í að ég verði alein í Ameríkunni á afmælinu mínu
Maðurinn minn var nebblega svo sniðugur að bóka ferð heim 2 dögum áður en ég á afmæli þrátt fyrir að ég var búin að byðja hann um að gera það EKKI - en svona er maður greinilega eftirminnilegur eftir tæplega 10 ár saman..... manni er bara gleymt ! Ekki nóg með að ég verð ein á afmælinu mínu þá verð ég líka ein yfir 4. júlí, en það hefði verið gaman að hafa einhvern til að labba niður í bæ með og horfa á flugeldasýninguna yfir rómantískum kvöldverði...... búhú Ég er nú samt eiginlega búin að ákveða bara að hafa smá matarboð 4. júli (heima hjá Andy og Meagan) og bjóða upp á íslenskt lambalæri með íslenskri piparsósu og meðlæti svo hann getur bara étið sínar fiskibollur á Íslandi í staðinn 
Annars var það ekki meira... ég er búin að setja inn myndir frá 17. júní partýinu og ég er enn að bardúsast við að setja inn myndir frá F1. Þetta blessaða 123 er ekki að gera góða hluti núna og held ég að ég eigi enn eftir að setja inn tæplega 100 myndir - og svo að raða þeim í tímaröð..... FUN
Anywho...... látið í ykkur heyra.... og Helgi Skúlí í Montreal - as far as I know, þá vorum við einu íslendingarnir í Grandstand 11, en ég spurði nú ekki alla hvaðan þeir voru

Today's page views: 91
Today's unique visitors: 7
Yesterday's page views: 76
Yesterday's unique visitors: 9
Total page views: 126943
Total unique visitors: 36525
Updated numbers: 20.3.2010 14:53:09