Much to do about nothing

31.8.2008

Hvað ert þú búin að gera í dag?

Ég og Steini erum allavega búin að hlaupa 1/2 maraþon!!
Nota bene - veðurskilirði í dag voru: 30°C í 90% raki og sól inná milli. Þetta gerir eitt möther fökker erfitt hlaup - kemur frá yfirmönnum mínum sem hafa, nota bene, tekið þátt í 5 Iron Man, hlaupið ég veit ekki hve mörg maraþon, og gera þetta að lifibrauði sínu !!"
Thank you very much for this program.....

Steini:
Splits: 5 Km 10 Km 10 Mi 11.3 Mi 20 Km Finish O'All Sex Div
Times: 27:42 57:24 1:36:18 1:50:28 2:00:04 2:08:40 4418 2788 453
Pace: 8:55 9:15 9:38 9:47 9:40 9:49



Kristín:

Splits: 5 Km 10 Km 10 Mi 11.3 Mi 20 Km Finish O'All Sex Div
Times: 34:02 1:10:18 1:56:17 2:13:32 2:24:30 2:35:03 9809 4682 1116
Pace: 10:58 11:19 11:38 11:50 11:38 11:50



Meira um það seinna.... ásamt nokkrum myndum !!
Við erum farin að teygja (og lappa upp á tásurnar okkar..... ÁI)

.... and Good Bye !



Written 31.8.2008 kl. 17:30 by Kristín

Direct link

5 comments so far. Add a new comment! | View written comments

26.8.2008

Everyday Stína

Jæja... þá er lífið loksins að komast í venjulegt horf aftur. Sumarið verður formlega búið hérna í USA næsta mánudag (þó það þýðir náttlega ekki að sólin sé farin), en sundlaugin verður allavega lokuð fram á næsta sumar þó . Ég hef þó allavega ströndina og Kristyn vinkona er með sundlaug heima sjá sér sem er opin all year round!
Annars eru tengdamamma og Ýra farnar eftir að hafa verið hjá okkur í 5 daga (of stutt). Þær eru núna hjá Habbó í Iowa í nokkra daga áður en þær fara svo heim til Íslands.
Útskriftarveislan mín var svo haldin með pompi og prakt á laugardaginn og vil ég þakka Möggu alveg kærlega fyrir að búa til svona frábæran mat handa öllum. Í boði var graflax með sósu, kjúklingur með chilisósu, ávextir með súkkulaði-grand sósu, brauð með heimalöguðu grænu pestó og rauðu pestó og ég veit ekki hvað og hvað.... allt alveg ógeðlega gott.
Svo langar mig að þakka mömmu og pabba, tendó, tendga afa og ömmu, systkinum Möggu, Gumma og Lilju, Ussa og Stellu og öllu þeim sem mættu í veisluna mína kærlega fyrir mig
Þetta var alveg frábært!
Við enduðum kvöldið auðvitað að kíkja í bæinn og halda sér svo vakandi til klukkan 4 til að horfa á leikinn sem var búin um 6 leytið (ég held ég hafið verið sofnuð áður en ég lagðist á koddann). Leiðinlegt að við skildum skít-tapa svona, en glæsilegt að ná svona langt !!
Annars er ég strax farin að eyða smá af veldinu sem ég fékk og er ég meðal annars búin festa kaup á 1950's eldhúsborði og stólum og nýja litla myndavél. Restin mun líklegast fara í kaup á húsgögnum því eitthvað þurfum við nú að eiga til að fylla nýju heimkynni okkar á Íslandi.

Annars er það bara að um helgina er Rock'n Roll 1/2 Marathonið sem við hjónin munum hlaupa. Ég verð reyndar líka að vinna alla helgina á expoinu í sambandi við það að kynna Shamrock og svo hlaupa 21km á sunnudagsmorgun - veit ekki alveg hvernig ég ætla að fara af því þar sem ég hef aldrei farið lengra en 10km... en við sjáum til. Þetta er meira svona til "að vera með" attitude en eitthvað annað. Sem betur fer er frí á mánudaginn allstaðar svo maður geti jafnað sig eftir þetta. En þar sem þetta er svona Rock'n Roll maraþon þá verða alveg fullt af hljómsveitum að spila á leiðinni og svo svaka lokapartý á sunnudagskvöldið. Þeir sem skemmta eru meðal annars; En Vogue, Los Lobos, Billy Idol og B-52's (en í heildina eru yfir 70 bönd að spila, man bara ekki meiri).

Anywho..... sökum ofþreytu á sunnudaginn nennti ég ekki að fá myndirnar sem Ýra tók úr veislunni minni svo ég fæ þær bara hjá henni þegar hún kemur til Íslands og mun henda þeim inn.

Ekki meira í bili...... The Maestro OUT !

Written 26.8.2008 kl. 14:29 by Kristín

Direct link

3 comments so far. Add a new comment! | View written comments

22.8.2008

Í dag er GÓÐUR dagur !

Segið mér eitt.... er betra að byrja daginn á því að vita að maður er útskrifaður með mastersgráðu og komast í úrslitaleik ÓL 2008

Hell NO !


Ég er allavega alveg í sjokki hérna... mun ekki getað unnið í dag, get ekki hugsað skírt og vil bara fara út í handbolta !!!
Allavega.. einn leikur eftir - sama hvernig fer þá erum við svo sannarlega FRÁBÆR í alla staði og "strákarnir okkar" (núna þegar gengur vel þá eru þeir "okkar") eru HETJUR !

En ég er líka hetja því í dag er formlegur útskriftardagur minn.......

Ég er bara svo glöð að ég get ekki sagt neitt meir !!!!

Written 22.8.2008 kl. 14:00 by Kristín

Direct link

4 comments so far. Add a new comment! | View written comments

20.8.2008

Nonni er að keppa á Ólympíuleikunum

...og samkvæmt mínum heimildum er hann komin í nýjan búning
Hvernig er nú annað hægt en að vera yfir sig stollt af okkar strákum í Peking þessa dagana. Komin í 4ja liða úrslit - geggjað. Verst að maður býr í handboltaminnstu þjóð í heimi og þarf því að horfa á þetta að leik loknum í gegnum tölvuskjá og yfirleitt eru úrslitin póstuð við hliðina á "click here to watch" linknum svo maður verður eiginlega að klikka með lokuð augun þangað til maður hittir. En það sem maður leggur ekki á sig fyrir handboltann !!
Annar í gestum er að koma fljótt - tengdó og hennar örverpi eru væntanlega hingað í kvöld. Veit samt ekki hvort þær vilji eitthvað koma eftir það sem ég er að fara segja..... Steini snillingur var sem sagt að fara ryksuga með sugunni sem við fengum í láni frá Meagan í gær. Þetta er náttlega þessi týpíska Ameríska ryksuga sem sýgur frekar lítið og tekur enn meira pláss.
Lítur pretty much svona út:

Allavega... Steini ætlaði að vera svo sætur og gera hreint fyrir mömmslu sína og stakk kvikindinu í samband. Finnst honum heyrast heldur hátt í vélinni og beygir sig fram til að skoða hvaðan það kemur. Skíst þá ekki plaststykkið sem er framan á vélinni af og ryksugupokinn, stútfullur af skít, springur í loft upp beint í andlitið á honum og ryk ÚT UM ALLT!
Mín fyrstu viðbrögð þegar hann hringdi í mig til að segja mér þetta var að pissa í mig af hlátri, en svo áttaði ég mig á því að ég yrði sett í að þrífa mesta skítinn þar sem hann er með algjöra ryklóar-fóbíu
Ég er allavega komin með aðra eins ryksugu að láni frá Final Kick og vonast til að hún springi ekki í hausinn á mér eins og hjá Steina. Eftir það þurfum við svo að fara í meiri skít því við erum búin að vera flísaleggja hjá Sellu og þurfum að setja fúur í í dag svo hægt sé að flytja þar inn á morgun.
Mig hlakkar allavega ekki til að koma heim því eins og Steini lýsti þessu var ryk ALLS STAÐAR og þarf eiginlega bara að henda öllu út úr íbúðinni og dusta það svo hægt sé að þurrka almennilega af...... vjása.

Þangað til næst.... The dust Bunny

Written 20.8.2008 kl. 16:03 by Kristín

Direct link

4 comments so far. Add a new comment! | View written comments

15.8.2008

Alveg að koma helgi....

  Jei.... afslappelsi, leti og sundlaugin...... og ekki veitir af.
Alls ekki að ég sé að kvarta, en ég er bara svo þreyttur eftir að vera með gesti og fara í ferðalög og borða góðan mat og horfa á ÓL fram eftir nóttu að ég held að ég ætli bara að gera ekki neitt um helgina !! Ég veit, ég veit.... AUMINGI - en svona er þetta þegar maður burðast um með meistaratitil á sér alla daga - hann þyngir á manni (MONT).
Annars hefur nú lítið gerst síðan síðast - Chili er öll að koma aftur í venjulega rútínu, sem á eflaust eftir að ruglast þegar "amma" hennar og frænka koma í heimsókn til okkar En svona er þetta - þetta er minna mál en að vera með barn, og þar sem allir í kringum mig (hvert sem ég lít á Íslandi) eru með barn eða alveg að fara koma með barn þá skal ég bara þegja !! Chili hefur bara gott af því að fá smá íslenskt influence á hana inn á milli þar sem maður talar nú mest við hana á ensku, þetta litla grey. Held ég að hún verði reyndar alveg í steik fyrst þegar hún kemur með okkur til Íslands - sérstaklega eftir að hafa verið í sóttkví í 28 daga.... en það er ca ár í það svo tölum ekki meir um það.
Steinar Freyr ætlar að gerast golf hetja um helgina og taka þátt í The Pete Decker Golf Tournament með honum Óla. Þetta er tveggja daga event með mat og alles svo hann ætti að vera sæll með það á sunnudaginn. Hann getur þá allavega ekki kvartað yfir því að ég nenni ekki að golfast í smá tíma. Hann fór alveg 3svar með Gumma, einu sinni með Óla og svo þetta mót svo.... held að það hafi ekki verið svona mikið golf í ár og aldir bara.
Annars er ég á miklu mótþróaskeyði þessa dagana gagnvart golfi. Er bara ekki að finnast það skemmtilegt og er eiginlega ekki að nenna því. Fyrir mig er það ekki nógu mikið action bara - mig langar bara í handbolta! Kannski eftir ár..... þá fæ ég að kasta aftur.
En talandi um handbó.... þá er alveg bannað að tala við mig um handbó næstu daga þar sem ég hef fundið leið til að horfa á leikina í gegnum NBC (þetta er að sjálfsögðu ekki sýnt live hérna í USA). Ég er búin að stilla ALERT á símanum mínum fyrir Dana og Egypta leikinn svo ég ætla mér að horfa á þá (á kristilegum tíma) þegar að þeim kemur.

Meira er það ekki.... Veriði hress, ekkert stress, og BLESS

Written 15.8.2008 kl. 13:36 by Kristín

Direct link

2 comments so far. Add a new comment! | View written comments

13.8.2008

Tómlegur

Closer look

8.8.2008

Klukk !!

Closer look

6.8.2008

Ferðasaga

Closer look

5.8.2008

Ég er í .....

Closer look

1.8.2008

Kalliði mig bara.....

Closer look

Home

Today's page views: 7
Today's unique visitors: 4
Yesterday's page views: 100
Yesterday's unique visitors: 11
Total page views: 126346
Total unique visitors: 36466
Updated numbers: 15.3.2010 02:22:20