Much to do about nothing
27.2.2009
Bloggleti
Heil og sæl.....
Ég vildi bara henda inn nokkrum línum og láta vita að við erum enn á lífi og við góða heilsu (allavega ég). Steini er kominn til sjúkraþjálfara útaf bakinu á sér svo vonandi fer þeim verkjum að linna !!!
Ég vil svo óska tengdamömmu innilega til hamingju með daginn í dag.... við sendum þér stórt knús frá Ameríkunni
Annars er það bara ógurleg bloggleti sem einkennist þessa dagana... þegar ég kem heim úr vinnunni nenni ég lítið að setjast fyrir framan tölvuna svo ég er að stelast bara smá núna í vinnunni.... er að fara á fund á eftir svo...... tek mér smá pásu núna.
Meira er það samt ekki...... pís át !
K
18.2.2009
Hvað hefur hlaupið í mína
Já það er eitthvað að gerast á Westover Avenue þessa dagana. Kellan er bara hætt að getað sofið lengur en til 7:00 og er farin upp í rúm fyrir klukkan tíu öll kvöld. Ég get svo sem ekki sagt að ég sé að kvarta út af þessari breytingu.... fangna henni reyndar þar sem ég hef þá meiri tíma fyrir sjálfan mig á morgnana til að fara að hreyfa mig og meiri tíma með mér og mínum á kvöldin þar sem ég þarf ekki að drífa mig heim, í ræktina, elda, vaska upp og svo..... þá er bara komin lúllutími hjá minni.
Ég held að eftir hlaupið um helgina að ég hafi fengið smá uppljómun..... ég nenni ekki að halda áfram í þessum farvegi sem ég hef verið í - löt á kvöldin og lúlla á morgnanna svo ég ætla að reyna að breyta því. Allir sem ég þekkir eru farnir á fætur milli 6-7 og koma ferskir í vinnuna eftir hlaup, hjól eða lyftingar.... og ég vil það líka takk fyrir.
Á máudaginn skellti ég mér með John og Steini í skokk (eftir vinnu reyndar) upp í First Landing State park og tók kjéllan bara 7 mílur í nösina. Var reyndar alveg búin á því um kvöldið en það er OK - ekkert til að hanga yfir hvort eð er. Í morgun var mín svo vöknuð og farin út um dyrnar hjá sér klukkan 7:30 í 3,3 mílnu skokk um hverfið. Manni veitir svo sem ekkert af að æfa sig að vakna og hlaupa þar sem ég ætla ekki að drepa mig í hitanum í sumar eins og ég gerði í fyrra
En meira er það ekki... maður þarf að fara slétta á sér hárið og koma sér í vinnugallan.... adios muchachos.....
K
15.2.2009
Aðeins of sein....
(Lesist eins og það sé föstudagurinn 13. febrúar)
Hann á afmæli í dag,
hann á afmæli í dag,
hann á afmæli hann Steinsiiiiiiiiiiiiiiiiiii
hann á afmæli í dag
(lesist eins og það sé laugardagurinn 14. febrúar)
Innilega til hamingju með alþjóðlegan ástardag dúllurnar mínar - við elskum ykkur öll
Og svo lesist eins og það sé dagurinn í dag......
Hlaupið um helgina gekk alveg svona glimrandi vel. Allir þátttakendur mjög ánægðir með brautina, veðrið og eftirpartýið - og það er nú ástæðan fyrir því að við erum að gera þetta. Fyrir starfsfólk J & A Racing Inc var ekki alveg eins heppið um helgina..... á fösturdaginn náði ég að bögla afturstuðarann á Explorernum hans Jerry (minni háttar samt) og á laugardaginn náði svo Chris að taka glæ-nýja F150 trukkinn hans og plaffa honum útí skurð og á tré!!! Sem betur fer slapp hann með minniháttar meiðsli, en bíllinn er ekki svo fallegur. Þetta var samt gljört slys og lítið hægt að vera reiður út af þessu. Vegurinn sem hann var að keyra á var svakalega mjög og hann mætti bíl sem honum fanst vera aðeins of nálægt miðjunni og rétt beyðgi til hliðar en þar sem það voru ekki nema ca 10cm frá veginum út í brattan skurð þá bara rann bíllinn útí !!! En - vonandi á máltækið "Fall er fararheill" við um nýja hlaupið okkar og það verður eins successful og Shamrock!
Síðustu dagar eru annars búnir að vera alveg svakalega skemmtilegir... brjálað að gera hjá okkur báðum og ekki skemmir fyrir því að það er búið að vera í kringum 20°C hiti alla vikuna. Það er reyndar farið að kólna aftur hjá okkur, en helst samt í kringum 6-12 stig og sól og logn - just perfect fyrir febrúar.
Steini skemmti sér svona líka vel í Snowshoe í seinustu viku. Hann skellti sér þangað á mánudaginn og kom heim seint á miðvikudagskvöldi. JR vinur okkar ákvað að skella sér til hans á mánudagskvöldið svo hann var með kompaní allan tíman. Hann var nú ekki sá liprasti á myndavélinni - tók bara ekki eina mynd svo ég hef ekkert til að sýna ykkur úr þeirri ferðinni.
Annars hef ég lítið meira að segja.. við tekur tiltekt eftir VIFL hlaupið og undirbúningur fyrir Shamrock fer að byrja á fullum krafti - skemmtilegasta job í heimi!!!!!
K
9.2.2009
Sunnudagspósturinn
Heil og sæl....... Þá er Þorrablótið okkar búið - myndir komnar í albúmið svo kíkið á það. Við fórum með hóp af fólk þangað og voru allir mjög ánægðir held ég bara. Við létum náttlega alla smakka hákarlinn, pungana og hausinn og fanst fólki mis gott
Í dag er svo alveg ÆÐISLEGUR dagur.... 23°C og sól... love it! Steini er í golfi og ég var að koma heim úr vinnunni og Chili er bara að vera hundur.
Annars hef ég nú bara ekkert að segja. Það er minna en vika í hlaupið mitt svo næsta vika verður eflaust frekar buzy - sem er gaman! Steini er að fara upp í fjöll á bretti á morgun og kemur aftur á miðvikudaginn svo vonandi kemur hann heim endurnærður og glaður í heilu lagi.
Meira er það ekki.......segið mér eitthvað spennó!!!
K
5.2.2009
Þorri nálgast.....
...já... hið árlega Þorrablót Íslendingafélagsins verður haldið á hátíðlegum afmælisdegi hennar Silju vinkonu, 7. febrúar 2009. Eins og vanalega er uppselt og fjöldi manns ná því miður ekki að komast á þennan eftirsótta viðburð þar sem lítið annað er gert en að borða, drekka og vera glöð! Ég mun vera dugleg á mynavélinni og mun því væntanlega henda inn myndum á sunnudaginn eða svo... hef ekki sett inn myndir síðan um jólin eða eitthvað.... hmmmm mín ekki að standa sig.
Annars er það að frétta að Steini er að skrífa úr sleninu og það er rétt rúm vika í V-day hlaupið okkar.... hlakka svo til... Ég veit ekki hvað það er í sambandi við þessar keppnishelgar, en þær eru bara svo skemmtilegar að mig langar að gera þetta svona einu sinni í mánuði
Veðrið hérna í Norfolk er búið að vera heldur skrítið... það svissat á missi -2 til +15 á tveggja daga fresti og veit maður ekki hvort maður á að vera í ullarsokkur og með húfu eða í kvartbuxum og stuttermabol! Sem betur fer er nú "alveg" að styttast í sumarið og því fara fötin hjá manni að minnka - vonandi!!!
Anywho..... best að halda áfam að vinna sér..... mikið gaman, mikið grín
K
Today's page views: 2
Today's unique visitors: 2
Yesterday's page views: 135
Yesterday's unique visitors: 14
Total page views: 127138
Total unique visitors: 36543
Updated numbers: 22.3.2010 00:58:11

