Much to do about nothing
25.5.2009
Tjékk it out.....
Partur 1 af ferð okkar er komin inn á filmu.
Erum núna í San Diego..... meira seinna
K & S
21.5.2009
I'm off to see the Wizard
...the wonderful Wizard of California !!!!!
Á morgun hefst ferðalagið ógurlega.... Vegas, Arizona, California - can't WAIT. Við ætlum að reyna að vera dugleg að henda inn myndnum þegar við komumst í netsamband og kannski segja einhverjar sögur.
Stay tuned.
Allavega..... vikan er búin að vera doldið öðruvísi en vanalega hjá mér. Bara ekkert að vinna og ég bara að dúlla mér með sjálfri mér og voffanum - ekki eitthvað sem ég er vön að gera en svo sem ágætis tilbreyting.
Í gær skelltum við svo okkur á Coldplay tónleika uppúr þurru. Ég var svo heppin að ná að redda súper ódýrum miðum handa okkur og var því ekkert annað en að setja á sig tónleika skóna og skella sér í tjútt. Ég verð nú að segja að þeir komu skemmtilega á óvart. Notuðu sviðið vel og hlupum um allan leikvanginn og spiluðu á hinum og þessum litlu sviðum svo maður var bara næstum alveg upp við þá....sá meira segja svitabletti og ég veit ekki hvað og hvað....hehe Svo skemmdi nú ekki að á leiðinni út fékk maður gefins disk af tónleikum frá þeim svo maður gat hlustað á þá á leiðinni heim líka :-) ......."lights will guide you home...."
Allavega..... óskið okkur góðrar ferðar og við sjáumst bráðlega.....
K
16.5.2009
Fréttir af Vestan
....það er loksins að maður hafi einhverjar fréttir að segja.... hversu góðar þær eru veit ég nú ekki - allavega er ég enn að venjast þeim !!!
Þannig er mál með vexti að atvinnuleyfið mitt gekk ekki í gegn BÚÚÚÚ en það voru náttlega alltaf bara 50/50 líkur á því að það myndi reddast svo þetta kom svo sem ekkert svakalega á óvart. Það sem kom mér þó á óvart, en skil samt vel, var að þá er nú lítil þörf fyrir mig í vinnunni og ákváðum við þá að það væri bara best fyrir alla ég myndi bara hætta þar sem það er svo svakalega lítið að gera yfir sumartíman og í raun engin þörf á mér........ ekki alveg það skemmtilegasta í heimi - en náttlega engin heimsendir. Þannig að ég ætla bara að auka við mig í YMCA og eflaust bara vinna þar þangað til við komum heim í brúðkaupsveisluna hjá brósa og Söru 4. júlí.
Ég er ekki enn búin að ákveða hvort ég verð eftir heima með Steina þá eða kem aftur út og klára að vinna til 1. september í YMCA....ætli það fari ekki bara eftir hvort ég nái mér í einhverja vinnu heima þangað til þá ! Ég er eitthvað byrjuð að skoða á mbl svo hver veit nema maður fái eitthvað í Kreppunni.......
Chili er samt allavega bráðum að fara koma heim.... hún fer með flugi héðan 9. júní og fer þá beint í sóttkví þessi elska.... hún kemur svo út 10. júlí og veður því orðin formlegur íslenskur ríkisborgari :-) Við þurfum að senda hana með cargo flugi frá New York svo ætli við tökum ekki annað ferðalag þangað með hana og kannski tjillum í 1-2 daga áður en við höldum heim til good old Norfolk aftur.
Anywho..... annars erum við bara hress í góða veðrinu hérna. Í næstu viku leggjum við af stað í ferðalagið okkar og get ég nú varla beðið..... Vegas - Hoover Dam - Grand Canyon - San Diego - Los Angeles - Big Sur - Yosemity Park og San Fransisco...... Við munum taka tölvuna með okkur og reyna að vera dugleg að setja inn myndir því ég trúi því nú að við munum taka HEILAN helling á þessum 10 dögum.
Meira er það að ég held bara ekki.... þið eflaust komin með nóg af þessu........
Góða helgi......K
10.5.2009
Hamingjuóskir.....
Besti brósi í heimi og hans besta kona eru nú orðin formleg.......
.....og svo falleg og fín......
Elska ykkur og ykkar litlu kríli mest í heimi.......................................................................................................
Til lukku með daginn.... megi framtíð ykkar vera eins löng og hamingjusöm og sólin teygir anga sína um alla eilífð.........eða eins og maður segir í Ameríku - Live long and Prosper
Raní, Stónz and Chili Pepper Sósa.......
6.5.2009
Cinco de Mayo
Annars er lítið að frétta... .veðrið leikur ekki við okkur þessa daga.... rigning og raki og meiri raki og í gær koma meira segja svo mikil rigning að það byrjaði að éla í smá stund. Steini hringdi í mig í vinnuna og sagði að það hefðir verið bara krass, búmm, bæng fyrir utan gluggan heima - þrumur og eldingar og svo bara hagl... takk fyrir - í Maí í Ameríku.... allt er nú hægt.
Um helgina náði ég mér svo í skyndihjálparréttindi hjá YMCA svo ég get tekist á við öll minniháttar slys sem verða á vegi mínum. Ég get svo sem ekki sagt að ég hafi ekki kunnað þetta, enda tekið námskeið hjá ÍTR, en alltaf gott að sprússa uppá þetta..... sérstaklega þegar maður er í Ameríku og þarf að díla við kæru-glaða Bandaríkjamenn. Aight......
Best að fá sér einn Mexicanskan og smá Enchiladas..... adiom amigos !
Today's page views: 89
Today's unique visitors: 13
Yesterday's page views: 79
Yesterday's unique visitors: 8
Total page views: 126738
Total unique visitors: 36507
Updated numbers: 18.3.2010 14:22:54

