09.08.2010 05:52

Kossar


Ásta Lovísa hefdi ordid 34 ára í dag.  Til hamingju med daginn Ásta mín.  Kvedja frá okkur öllum.  Set fljótlega inn myndir af krökkunum. 

Dadi

30.05.2009 17:03

Minning











Minning um hetju sem féll frá fyrir 2 árum í dag.....................

09.08.2008 08:42

Kossar






Langaði að setja inn mynd af afmælisbarni dagsins, elskulegri systur minni henni Ástu Lovísu, sem hefði orðið 32 ára í dag.  Þúsund kossar frá okkur öllum. 

Daði







30.05.2008 14:15

Minning um hetju



Elsku Ásta mín!

Í dag er eitt ár liðið frá því að þú kvaddir þennan heim með reisn.   Minningin um hetju lifir og enn í dag lesa margir bloggfærslur þínar á heimasíðunni.  Þú heldur áfram að hafa áhrif á fjölda fólks daglega og þín er sárt saknað.  Það líður ekki sá dagur að við hugsum ekki til þín með væntumþykju og aðdáun.  Langaði að setja inn mynd af fallega leiðinu þínu enda hefurðu og verður alltaf  englastelpan okkar.

Daði 







10.03.2008 08:57

Falleg mynd



Varð að deila þessari mynd af Ástu Lovísu með ykkur,

Daði










31.01.2008 11:57

Bréfið


Elsku Ásta mín!

Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt.  Í gær voru 8 mánuðir frá því að þú kvaddir okkur.  Finnst samt eins og þetta hafi gerst fyrir nokkrum dögum síðan.  Magnað hvað væntumþykjan, virðingin  og stoltið situr fast í hjörtum okkar.  Írenu dreymdi þig um daginn.  Litli engillinn var í faðmlögum við móðir sína rétt áður en hún vaknaði.  Gaman ad heyra hvað þú sækir sterkt í börnin þrátt fyrir ný heimkynni. 

Ég get varla beðið lengur eftir bréfinu þínu.  Eins og margir vita var Ásta okkar mjög skipulögð.  Þegar hún gerði sér grein fyrir að skammt var til stefnu lét hún fara með sig í bæinn að versla gjöf og bréfsefni.  Tilefnið var að Daði bróðir yrði sérfræðingur í  skurðlækningum í febrúar 2008.  Gjöfin var keypt og skrifaði Ásta bréf til mín sem ég fengi svo afhent þegar að stóra deginum kæmi.  Hún lét mig vita af þessu nokkrum dögum fyrir andlát sitt og síðan þá hefur þetta ekki horfið úr huga mér.  Ég hlakka óendanlega mikið til að sjá ritstíl þinn aftur, upplifa kærleikan sem ríkti okkar á milli og skynja nærveru þína. 

Takk fyrir að hafa verið til,

Daði

31.12.2007 13:58

Jóla- og nýárskveðja


Óskum ykkur lesendur góðir gleðilegra jóla og vonum að nýja árið verði ykkur farsælt og gæfuríkt. 

Daði

08.12.2007 13:02

Afmæliskveðja


Elsku Kristófer Daði

Til hamingju með afmælisdaginn þinn elsku vinur.  Vona að veislan verði skemmtileg og ég hlakka til að heyra í þér í síma seinna í dag.

Kveðja,

Daði frændi

04.11.2007 13:31

Alla helgons dag


Um þessa helgi er allra heilaga messa (alla helgons dag).  Þá er hefð að minnast látinna ættingja og vina.  Í Svíþjóð er þetta stór dagur og fara flestir í kirkjugarða með luktir og kerti og minnast látinna ástvina.  Í dag eru rúmir 5 mánuðir frá því að Ásta Lovísa féll frá og langar mig að minnast hennar með þessum skrifum.  Það líður ekki sá dagur að ég hugsa ekki til þín Ásta mín, minnist æsku okkar, vinskap, daglegra samtala og samskipta.  Ég gleymi aldrei viðmóti þínu, brosi og augnsvipum ásamt kímni, heiðarleika og hreinskilni.  Þín er sárt saknað af börnum, unnusta, systkinum, foreldrum og vinum.  Minning þín varir að eilífu.  Þúsund kossar og faðmlög til þín, hetjan mín, yfir þessa sérstöku helgi........

Daði

08.10.2007 12:31

Myndir

Komnar inn nokkrar myndir af Tenerife-förum í myndaalbúmið.

Kveðja, 

Daði 

18.09.2007 21:18

Afmælissól

Til hamingju með 9 ára afmælið elsku Embla mín.  Vona að heimferðin verði góð á morgun og ég hlakka til að setja inn myndir af ykkur úr sólinni.


Kveðja,

Daði frændi

06.09.2007 18:00

Draumar rætast

Eins og flestir vita sem lesa þessa bloggsíðu var Ásta Lovísa valin Íslendingur ársins 2006 af tímaritinu Ísafold.  Auk þess heiðurs sem því fylgir fékk Ásta að launum ferð til Tenerife fyrir sig, börnin þrjú og fylgdarmann.  Upprunalega stóð til að leggja í hann í kringum páskana en sökum veikinda Ástu og í samráði við lækna varð aldrei af þeirri ferð.  Ásta lét okkur lofa því á dánarbeði sínu að farið yrði með börnin eftir hennar dag og rættist það í gær .  Guja amma og Hödd frænka tóku allan skarann í gær og héldu í langt ferðalag til Tenerife, börnin yfirspennt og gleðin skein úr augum þeirra langa leiðir.  Flugið gekk vel og liggur fyrir 2 vikna ævintýraferð fyrir litlu englana sem misst hafa svo mikið.  Læt vonandi seinna meir inn myndir af ferðalöngunum eftir komu þeirra heim.

Með kveðju,

Daði

01.09.2007 22:00

Minningin lifir

Vildi bara láta ykkur vita að bloggsíðan hennar Ástu minnar verður opin um ókomna framtíð.  Er það gert til þess að varðveita skrif hennar og lífsvisku .

Með kveðju,

Daði bróðir

21.08.2007 15:26

Afmæliskossar

Elsku Írena Rut

Til hamingju með 4 ára afmælisdaginn þinn, litli engill! .  Mamma þín er hjá þér í anda og heldur upp á daginn með þér.  Kossar og knús frá Svíþjóð.

Daði frændi 
Flettingar í dag: 15
Gestir í dag: 6
Flettingar í gær: 74
Gestir í gær: 14
Samtals flettingar: 47596
Samtals gestir: 12235
Tölur uppfærðar: 26.4.2024 06:57:19

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Ásta Lovísa Vilhjálmsdóttir

Afmælisdagur:

9. ágúst 1976

Um:

~ Söfnun ~ 0525-14-102510 Kt:09.08.76-5469

Tenglar